Lífið mitt

08.11.2007 15:27:59 / eyrunska

vei vei

vei vei, í dag eru ekki nema 19 dagar í settan dag og ég get eiginlega ekki beðið eftir að sá dagur kemur og vonandi ákveður drengurinn að láta sjá sig fyrr því ég er ekki alveg að meika 19 daga í viðbót og hvað þá ef þeir fara uppí 33, úff það verður ekki gott ef það gerist...

En við Gunni búum ennþá í íbúðinni okkar og gengur allt bara vel. Hann er alltaf að skipta um bíla en hann keypti í síðustu viku imprezu wrx turbo 2003 árg (held ég sé að segja rétt frá;) en hann er líklega bara seldur í þessari viku, haha skrítið en svona er hann Gunni minn :D

ég hef nú fátt að segja en við héldum innflutningspartý og var það mjög gaman, amk skemmti ég mér mjög vel og mættu fleiri en ég bjóst við :D

síðustu daga hef ég verið mjög mikið bara heima því ég er orðin svo slæm af grindagliðrun og svo átti ég að fara í blóðprufu í dag en það gleymdist að segja mér hvenær það lokaði og viti menn þegar kellan mætir 14.30 þá er henni sagt að það lokaði kl 11... ég verð víst að fara bara í fyrramálið en það er eitthvað vesen með járnið hjá mér og hún (ljósan) vildi bara tjekka á öllu öðru í leiðinni úr því hún var yfir allt að senda mig í blóðprufu. ekki mitt skemmtilegasta að fá sprautu en ég læt mig hafa það :D

úff svo er svo stutt í jólin, þarf helst að fá að vita hvað allir vilja í jólagjöf svo ég geti byrjað að versla :D er búin að kaupa tvær en það voru þær auðveldustu, handa Thelmu og Dagrúnu.

um helgina er ég svo að fara að djamma eða hitta stelpur sem ég er búin að kynnast sem eru mömmur eða alveg að verða mömmur og þær eru YNDISLEGAR og ég er svooo fegin að hafa kynnst þeim, hef amk eitthvað að gera þá :^) sit ekki ein heima allan daginn og svona, hittumst nefnilega alltaf á þriðjudögum og þeim hittingum fer fjölgandi :D

en ég ætla að láta þetta duga í bili, svo verður vonandi næsta blogg bara blogg um að litli sé kominn í heiminn.. eða ég vona það amk :lol:


» 9 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 23:59:28 / eyrunska

úff heill mánuður

haha það er ekki nema mánuður síðan ég bloggaði síðast, eflaust enginn sem skoðar þetta ennþá en ég ætla samt að blogga ef það er einhver sem skoðar þetta ennþá :D

Það eru nú ekki margar fréttir af okkur en samt einhverjar, við erum búin að búa núna í mánuð og það gengur bara mjög vel ennþá hehe vonandi verður þetta svona áfram :D samt svolítið skrítið að búa ekki hjá mömmu lengur, maður saknar hennar bara meira...

skólinn gengur bara vel hjá mér eins og er, fæ reyndar einkunn á mánudaginn úr Brennu-Njáls-sögu og ef ég fæ ekki yfir 4,5 þá verður erfitt fyrir mig að ná áfanganum en það á alveg að vera hægt bara meira álag á manni og ég veit ekki hvort ég komist í prófin... Jólaprófin mín eru á svo hentugum tíma núna eða hitt og heldur, annað prófið mitt er 3.des og hitt 6.des, hefði alveg viljað að þau væru vikuna eftir svo að ég gæti svona "pottþétt" mætt en ég vona bara að ég nái að mæta í þau sama hvort sem hann verður fæddur eða ekki ;)

vinnan mín er nú ekki að ganga vel, hætti að vinna 14.september af sökum Glindagliðrunar og það er eitthvað sem ENGIN kona óskar sér á meðgöngu, þetta er PAIN, mátt varla sitja öðruvísi þá ertu að drepast í grindinni allan daginn... úff erfitt sko en hvað gerir maður ekki fyrir litla strákinn sinn...

það eru ekki nema 46 dagar í settan dag en það var nú spákona sem sagði við mömmu að hann kæmi 21.nóv þannig að ég bíð spennt þann dag hehe nei segi svona... hann kemur þegar hann vill koma, vonandi bara áður en mamma fer í siglinguna sína, hún verður nú að ná að hitta litla strákinn áður en hún fer :D

annars held ég að þetta sé það sem er búið er að gerast hjá mér síðasta mánuðinn... núna þarf ég bara að bíða eftir að fá blað frá TR (tryggingastofnun) og vonast til að þeir borgi mér laun þar sem ég má ekki vinna :( maður verður mjög einhverfur á að vinna ekkert, líður eins og algerum aumingja...

heyrumst síðar, skal reyna að vera duglegri að blogga :D

Eyrún og bumbustrákur ( 33vikur og 3 dagar bara 6 vikur og 4 dagar eftir )

pregnancy calendar" title="pregnancy calendar">


» 12 hafa sagt sína skoðun

07.09.2007 11:24:59 / eyrunska

:D

Hæ Hæ ;)

ég ætla að byrja á að óska Tanna til hamingju með daginn um daginn, hann hefði orðið 20 ára og hefði hann pottþétt haldið partý aldarinnar..

SAKNA ÞÍN !!!

og svo vil ég líka óska Hönnu Maggý til hamingju með 20 ára afmælið sitt sama dag ;)

OG síðast en ekki síst SIBBA TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ 4.SEPT.... ÞÚ ERT YNDI :*

en núna skal ég koma með fréttir af mér og mínum

í dag er 7. september og fengum við lykla af íbúðinni okkar í gær :D:D:D:D:D:D:D mikil gleði hér á bæ og í kvöld er ég að fara í afmæli hjá Sibbu og verður það geggjað stuð ;) langt síðan við höfum gert eitthvað svona saman stelpurnar

annars er ég bara á fullu í skólanum og vinn svo stundum í sjoppunni með sibbu... það er mjög fínt...

litli bumbustrákurinn minn er byrjaður að sparka á fullu og hann stækkar og stækkar, vonandi bara stækkar hann ekki það mikið að hann verði eins og pabbi sinn þegar hann fæddist :P

en það eru allir velkomnir í heimsókn til okkar ;) bara endilega hringja eða senda sms eða eitthvað til að fá að vita heimilisfangið :D

hef þetta nóg í bili man ekki mikið meira hehe

********************Eyrún og Bumbubúi Strákur ***********************


» 10 hafa sagt sína skoðun

16.08.2007 19:33:13 / eyrunska

Komin tími á fréttir ;)

ég held það sé komin tími á fréttir af okkur ;)

Við Gunni vorum á Rhodos í 3 vikur með fjölskyldunni hans og Elvu Eik ;)

það var alveg svaka stuð þar en þetta var nú samt bara fínt hehe þetta er ekki eitthvað land sem ég fer til aftur og mæli með að þið gerið það ekki heldur nema þið séuð komin á elliárin hehe

Á Rhodos var lítið hægt að versla en okkur tókst að versla smá á litla bumbubúann ;) hann verður töffari :)

fórum í ferð sem var boðið uppá á vegum heimsferða og það var til Tyrklands, eða marmaris... það var fínt að vera þar, smá heitt en við gátum verslað smá þar, keypti mér skó, 2 peysur og einar buxur nei ekki pabba buxur heldur eitt par af buxum hehe ég er svo fyndin :)

en okkur tókst einnig að trúlofa okkur, já þið lesið rétt Eyrún er Trúlofuð ;) við trúlofuðum okkur 09.08.07 :)

á morgunn sæki ég svo stundaskrána og vona að ég nái að taka sem mest en samt ekki of mikið ;) kemur allt í ljós á morgunn... verð líka að vonast til að kennararnir komi upp á móti mér með prófin og þess háttar

svo styttist í að við fáum íbúðina okkar afhenta, ef allt gengur með lán og svona þá ættum við að flytja inn 1 október :) allir að krossa putta að það takist ;) og ef það tekst þá eru allir velkomnir í heimsókn til okkar ;)

og auðvita styttist líka í að stráklingurinn komi í heiminn... hann stækkar og stækkar eða mér finnst ég allavega stækka og stækka hehe

en ég held þetta sé komið gott í bili, verð að reyna að bæta mig í þessum bloggheimi :) gott að geta fylgjst með fólki í gegnum hann ;)

þanngað til næst ;)

Eyrún og bumbustrákur


» 8 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 20:55:59 / eyrunska

ætla að reyna að byrja upp á nýtt

hæhæ ;)

ég ætla að prufa að byrja upp á nýtt og athuga hvernig það muni ganga:D

reyndar ekki mikið um að vera í mínu lífi þessa dagana en ætla að punkta um það sem hefur gerst síðan einhverntíman:

  • Eignaðist litla frænku 25 mars, hún fékk nafnið Viðja Sóllilja
  • Eignaðist frænda 23 apríl, hann fékk nafnið Stefán Einar
  • Er sjálf að verða mamma, settur dagur er 27.nóvember
  • Við Gunni höfum verið að leita okkur að íbúð en ætlum að taka þetta rólega enda þurfum við ekki að flytja inn strax :)
  • BASE fyrirtækið sem ég var í vann í keppni sem við tókum þátt í á vegum JAI... ég fer ekki með þeim en það er keppni í Berlín 26 júlí en ég ætla að vera með Bumbuna út í loftið á Rhodos
  • Við leyfðum Elvu Eik að koma með okkur í tvær vikur til Rhodos, það verður eflaust mega stuð
  • náði öllum áföngum í skólanum og ætla mér að ná næstu önn líka með stæl ;)
  • er að vinna á leikskóla hérna á Álftanesi og líkar það mjög vel :D
  • búin að selja Honduna mína og eigum við bara einn bíl, mun ódýrara og ég labba í vinnuna, góð hreyfing:)

En núna er ég bara heim að láta mér leiðast, er lasin, fór til læknis í dag og hann sagði að ég væri með eyrnabólgu :/ ekki skemmtilegt...

en Næstu helgi er ég VONANDI að fara að passa Stefán Einar ;) verð að fá að prufa að vera mamma hehe nei segi svona, bara gaman að geta hjálpað :D

Þanngað til næst ;)

Eyrún og 14v6d bumbubúi

 

 

P.S. EF EINHVERN LANGAR AÐ FARA Í ÚTILEIGU ENDILEGA LATA MIG VITA, MIG LANGAR GEGGJAÐ I UTILEIGU!!!!!!!!

 


» 5 hafa sagt sína skoðun


Settur dagur bumbubúans
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1549 dögum
RSS tengill
Rhodos
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1678 dögum